24.1.08

2. hluti. Ferðalagið til Frankfurt 

Þá erum við komnir til Frankfurt............. hehe oh nei. Ég hafði nú rétt fyrir mér í síðustu færslu þegar ég var ekki viss um hvar við lentum. En málið er að flugið til Lissabon gekk alveg ótrulega vel. Þegar þangað var komið fórum við aðeins út úr flugstöðinni til að geta þó sagst hafa farið til Portúgals ? en síðan héldum við rakleiðis að deskinu til að tékka okkur inn. Þetta átti nú að vera auðvelt en þessi sem ég var búinn að gefa langt og gott frí vegna frábærar frammistöðu í skipulagningu fær núna ekki það frí sem hann átti skilið.
Ég rétti farseðilinn að dömunni og samskiptin voru eitthvað á þessa leið: ?Can I see your passport please? ég rétti henni passan og hún byrjar að stimpa eitthvað inn í tölvuna............ smá þögn.........?you have to go to the TACV desk? ég varð svolítið hissa og spurði afhverju og hvort að það væri eitthvað vesen........ ?you have to go to the TACV desk?. Það þýddi lítið að spurgja hana meira þar sem hún virtist bara vilja segja okkur þetta þannig að við leituðum og fundum loksins deskið okkar.
Þegar þangað var komið var okkur tjáð að það hefði komið eitthvað uppá , sem við vitum reyndar ekki enn hvað er, og við værum að fara upp á hótel í Lissabon en ekki til Frankfurt.........og við eigum að taka næsta flug til Praia á morgun.........ahahahahaaaaaaaaaaaa.
Til að kóróna allt þá höfðu strákarnir tékkað farangurinn sinn allaleið til Frankfurt og hófst þá vinna við að finna hann. Ég sem betur fer tók allann minn farangur í handfarangur.
En eftir um 3 tíma bið upp á flugvelli fyrst að fá hótel og ná í einhvern á Grænhöfðaeyjum, sem gekk ekki og síðan að bíða eftir að töskurna skiluðu sér, komumst við á Radisson SAS hótelið okkar.
Núna er ekkert annað að gera en að skoða Lissabon aðeins þar sem við höfum aldrei komið hingað. Við eigum flug á morgun kl 2200 til Praia og ætlum við að nota tímann vel í að borða góðan mat og ferska ávexti.
Ágætis tilbreyting frá Cabo Verde :)

Sápuópera 1. hluti 

Mikið búið að gerast síðustu klukkustundirnar. Eins og þið vitið þá áttum við að leggja af stað til Frankfurt í kvöld. Þegar við mættum á flugvöllinn fórum við beint á ?front office? sem er aðal contact aðili við flugáhafnir. Við vorum látnir bíða í smá stund og héldum við að þeir væru bara að prenta út fylgigöngin sem við áttum að fara með til Frankfurt. En síðan kom það í ljós að Flugstjórinn og kassatékkarinn okkar meldaði sig veikan klukkutíma fyrir brottför frá Praia.

Núna var ekkert annað að gera nema að fara aftur heim, drullu fúlir að komast ekki í kassann. Við fórum bara á næsta bara og fengum okkur einn, kannski tvo öllara. Þegar barnum vara lokað ákváðum við að fara á hótel Tropical.
Þegar við vorum að stíga upp í leigubíl sjáum við hendi veifað út úr sendibifreið og þar er enginn annar en Ney gaur sem vinnur hjá félaginu og við erum alltaf að rekast á. Þá er hann búinn að vera leita að okkur í smá tíma því það var ákveðið að við færum til Lissabon í Portugal í nótt og síðan til Frankfurt á morgun, vonandi. Þar verður annar kapteinn sem mun annast okkur. Núna þegar þetta er skrifað er klukkan 0145 að nóttu og við erum að bíða eftir bílnum sem keyrir okkur upp á völl. Hvar við verðum á morgun vitum við ekki en það kemur í ljós

23.1.08

Frankfurt á eftir 

Hlutirnir geta gerst hratt hérna stundum að minnstakosti. Fengum símtal frá Samúel á máundaginn um að við þyrftum að bíða í viku þ.e fram á næsta mánudag til að fá einhverjar fréttir af námskeiðshaldi. ohhhhhhhhh bíða í aðraviku eftir fréttum. Ég áhvað þá að reyna komast bara heim í nokkra daga á meðan við værum að bíða. Ég ætlaði því að fara til Samuels í gær og kanna flug og svoleiðis. En á meðan ég var að bíða eftir leigubíl hitti ég hinn marguntalaða Val. Hann segir mér að félaginn minn, stór ljóshærður gaur væri að ganga hérna fram og til baka og væri örugglega að leita af mér. Mér datt auðvitað Eysteinn í hug en það gat eiginlega ekki verið því að klukkan var bara 9 og ekki séns að hann væri vaknaður. En ég elti samt Val eiginlega á hlaupum því honum var svo í mun að finna Eystein. Loksins fannst gaurinn og hafði þá ekkert talað við Val. En ótrulegt en satt þá var Eysteinn að gera dauðaleit af mér því hann var vakinn með símtali. Hinumegin var CapoVerdian kelling örugglega að tala creolsku og með herkjum náði hann að tengja það sem hún sagði. Inná milli creolsku orðanna kom orðið "operation" síðan eftir enn lengri tíma kom "TACV" og síðan kom "january dos tres. Jú ætli hann hafi ekki skilið líka þegar hún sagði "Aeroporto". Með þetta var skellt á og grey strákurinn enn með stýrurnar í augunum var reyna að lesa í eyðurnar. Jú þetta var auðvelt. Ætli við séum ekki að fara í kassan 23. jan. og við áttum að fara upp á völl.
Um leið og öllum hópnum var safnað saman héldum við upp á völl og viti menn, við erum að fara í kassann og það er búið að skipuleggja þjálfun á mánudaginn og þriðjudaginn. Ótrúlegt. Það á einhver skilið langt frí eftir þetta afrek. Á mælikvarða CaboVerde ætti svona að taka a.m.k 2 vikur. Skipuleggja kassa og tvo námskeiðsdaga á aðeins nokkrum tímum. Þið munið enn að daginn áður vissi enginn neitt og við áttum ekki að fá neinar fréttir fyrr en eftir viku :)

En allavega erum við núna að fara í kassan í Frankfurt og ætlum við að nota daginn í það að lesa bækurnar okkar og kannski aðeins að leggja okkur því flugið okkar er kl 2350 í nótt og eigum við ekki að lenda fyrr en um 14 á staðartíma í Frankfurt. Þrjú tengiflug:( Við eigum að koma aftur til Praia á sunnudaginn þannig að það verður svakalega keyrsla þennan tíma.

Þanngað til næst

20.1.08

Gæra er málið 

Það er alveg ótrúlegt en það heitasta hjá töffurunum hérna á Grænhöfðaeyjum er að vera með gæru eða gæru líki í bílnum sem þekur allt mælaborðið. Margir leigubílar eru með svona og líka allir hnakkabílar.
Við fórum í dag og kíktum á markaðinn hér í Praia. Það var nú lítið að sjá nema notuð föt og GMS cover. En allavega fann ég svona gæru til að setja í bílinn. Þannig að maður verður flottur í jeppatúrunum :) Ég ætla að vona að maður nái að fara í einn túr þegar ég kem heim. Það er mjög sárt að lesa að það snjói og snjói heima. En það snjóar örugglega aftur næsta vetur.

19.1.08

Smá þefur af Sal 

Þá kom ég loksins heim eftir obs. flugið til Fortaleza. Þetta er nú frekar stutt flug 3:30 en vesenið að fara í þetta flug er svakalegt. Í fyrsta lagi þá eru flest öll flugin farin frá eyjunni Sal en allir flugmennirnir nema einn eiga heima í Praia. Þannig að við verðum að byrja á því að fara með innanlandsflugi til Sal sem tekur 35 mín. Þaðan var hoppað upp í vél til Fortaleza og lent aftur í Praia um 9 tímum seinna eða um tvö um nóttina. Þar sem er ekkert innanlandsflug svona seint er allri áhöfninni sópað á hótel og megum við ráða hvort að við tökum vél aftur til Praia daginn eftir kl 9 um morgunin eða kl 16.
Ég áhvað að taka seinni vélina sofa út, skoða Sal aðeins og kíka á ströndina :) Það er enginn spurning að ef við byrjum nú einhverntímann að fljúga hérna þá vona ég að við verðum í Sal en ekki hér í Praia. Málið er einfalt ekkert vesen að koma sér í flug og síðan er endalaust hægt að finna sér eitthvað að gera í Sal annað en hér í praia.
Gamlar færslur

This page is powered by Blogger. Isn't yours?