31.10.05
Kem heim á morgun
Þá er þessi vist næstum á enda þar sem ég kem heim á morgun. Þetta er búið að vera ágætis vera hérna og er ég búinn að fljúga bara ágætlega mikið m.v aðra sem hafa verið svipaðan tíma.
Fór í tvö sjúkraflug í gær. Eitt frá Ísafirði og það seinna var frá Bíldudal. Brottflugið frá Ísafirði var mjög skemmtilegt þar sem skyggnið var orðið mjög lítið og það reyndi svolítið á að komast í burtu. Snjókoma og læti en við biðum og loks þegar gafst brunuðum við af stað og beint í bæinn. Ég get allavega núna sagt að ég er kominn með svolitla innistæðu inn í reynslubankann eftir flugið í gær :)
Þar sem að við komum svo seint frá Bíldudal þá ákváðum við að gista í bænum á laugardags kvöldið. Það var gaman. Kíkti á eftiróvissupartí hjá Sigga Mömmu. Þeir höfðu komist að því að ég hefði farið í jóga tíma hérna og spurðu hvort að strákurinn gæti ekki staðið á haus eins og alvöru jóga gaurar gera og..............hvort ég gerði, það var ekki rætt um jóga eftir það ;)
Annars var gaman að hitta þá og sjá líka myndirnar úr óvissuferðinni. Ég held að þeir hafi bara verið á bjór en vafasamari myndir hef ég eiginlega ekki séð af Hress genginu.
Brynja og Afi eru núna að byrja að flísaleggja baðið heima hjá okkur og höldum við áfram á morgun þegar ég kem í bæinn. Var reyndar að fá að vita það í gær að ég er settur á winter operation námskeið á morgun hjá Landsflugi, þannig að ég vona að við komumst eitthvað í þetta á morgun. Kemur í ljós.

29.10.05
Brjálað veður
Núna bíða bara verkefnin í hrönnum. Núna sitjum við límdir við tölvuna og bíðum eftir að rofi til og við komumst í lofið.
25.10.05
Viku bið
Það er ekkert að gerast hérna á Ísafirði. Flugum síðast á þriðjudaginn í síðustu viku. Reyndar erum við ekki búnir að sitja auðum höndum. Kíkjum reglulega á vélina og gerum hana klára fyrir næsta flug, en það eru takmörk fyrir því hversu lengi hægt er að gera hana tilbúna. Síðan tekur ræktin stóran part úr deginum. Annan hvern dag er spinning kl 12 og jóga sama dag kl 18, þannig að eins og þið sjáið þá er nóg fyrir stafni hérna. Þegar við erum ekki í ræktinni er Langi Mangi góður vinur og eyðum við mörgum stundum þar við að lesa moggann og leysa SUDOKU.
Það var gaman um helgina þegar Brynja áhvað að skella sér í sveitina og heimsækja strákinn. Ég var búinn að gera henni grein fyrir því að kannski yrði sjúkraflug og í versta falli gæti gerst að það yrði um kvöld þannig að við yrðum í Reykjavík um nóttina. Ég í bænum og hún ein á ísafirði hehe. En sem betur fer varð ekkert svoleiðis. Hún átti pantað með fyrra fluginu á sunnudaginn en verðrið setti strik í reikninginn og var fluginu frestað og frestað og leit allt út fyrir það að það yrði ekkert flogið á sunnudaginn. Brynja var nú ekki alveg sátt með þetta og fannst alveg hræðilegt að vera hjá mér einn aukadag á Ísafirði. Og hún sem þurfi að vinna svo mikið :)Síðan birti til og komu tvær vélar um sex leitið og frelsaði þá sem virtust ætla að vera innlyksa hér.
Og eftir sat ég enn að bíða eftir flugi á meðan kærastan flýgur á brott. En það er allt í lagi. Ég kem eftir viku að það er ekkert lengi að líða.

18.10.05
Alveg frábært hérna á Ísafirði
Þetta er nú búið að vera skemmtilegt hérna síðan ég kom á laugardaginn. Var reyndar búinn að skrifa alveg heilan helling í gær en þegar ég ætlaði svo að setja það inn á síðuna þá bara allt farið :( , þannig að núna er styttri útgáfan sögð.
Ég þurfti ekki að bíða lengi eftir flugi eins og Addi. Strax á sunnudeginum lentum við í helling af verkefnum. Byrjuðum daginn á að fara til Reykjavíkur og fara þaðan tvær ferði á Bíldudal með áætlun. Það var alveg meirháttar að byrja á svona áætlun og líka það að byrja veruna með látum. Ég held að það sé betra að byrja að fljúga strax þó það verði ekkert flug eftir það, heldur að bíða og bíða eftir að komast í loftið. Eftir seinni ferðina á Bíldudal héldum við til Ísafjarðar og fórum vestur fyrir. Dengsi var bara að sýna mér leiðina sem við færum frá Ísafirði til Bíldudals ef skýjahæðin er lág.
Í gær síðan var smá stund milli stríða. Byrjuðum daginn snemma kl 1200 í ræktini Studio Dan. Þar var tekið á því í spinning fyrst og síðan með lóðunum. Eftir um tveggja tíma púl gengum við ferskir út. Þá var dagurinn byrjaður loksins og þar sem við vorum í svona feikna formi, ákváðum við að fara upp í flugskýli og þrífa vélina. Það var allt tekið, ryksugað, sætin pússuð, bætt á olíu og ég veit ekki hvað og hvað. Reyndar á leiðinni í flugskýlið stoppuðum við á bensínstöðinni og þvoðum bílinn. En hvað er klukkan orðin .............1810?? Við erum að verða of seinir í jóga. Já við skelltum okkur líka í jóga í Studíó Dan. Þetta var mjög fínt þó ég þurfi aðeins fleiri tíma til að geta sagst vera liðugur, en næsti tími er á morgun þannig að þetta mun batna og batna.
Heyrðu núna ætla ég að fara að hætta. Gerðist reyndar alveg hellingur í dag sjúkraflug og veðurtepptir flugskólavinir en heyrumst á morgun.

15.10.05
Kominn til Ísafjarðar
Þá get ég loksins farið að skrifa á ný. En málið er að næstu 17 daga verð ég á Ísafirði á sjúkraflugs vakt. Þeir hjá Landsflug buðu mér starf í sjúkrafluginu á Chieftain.
Þegar ég lenti á Ísafirði taka á móti mér firt officer Addi og Captain Dengsi. Addi var búinn að vera hérna í rúmar tvær vikur en Dengsi á viku eftir þannig að það endaði að við tveir horfðum á Adda fara með Fokkernum til Reykjavíkur.
Þá var málið að kíkja á vélina og klappa henni aðeins áður en ég fengi að kíkja á höllina sem við búum í hérna fyrir vestan. Íbúðin er hin fínasta í downtown Ísafjörður.
Addi er búinn að tala mikinn um hvað sé hægt að gera hérna og toppurinn er að fara í Studio Dan (ræktin maður). Ég var ekki búinn að vera lengi hérna á Ísafirði þegar ég var drifinn á hlaupabrettið og lóðalyftingar í lokin. Þetta var fínt og var jafnvel tekið meira á því en í ræktinni heima.
Eftir allt sprikklið í ræktinni var haldið í Bónus og keypt í matinn fyrir næstu tvær vikurnar.
Ég held að næstu tvær vikur eigi eftir að vera mjög skemmtilegar og vonandi verður alveg hellingur af flugi fyrir okkur. Það er bara að bíða og vona :)