Nokkrir hressir hresslingar skunduðu á Helgafell í nágrenni Hafnarfjarðar sunnudaginn 5.mars 2006. Þetta uppátæki fór vel í mannskapinn og munum við örugglega gera þetta aftur þó síðar verði. Eftir fjallgönguna fór ég og Brynja í flugferð á TF-AIR með Braga vinnufélaga. Þetta var í fyrsta skiptið sem ég flaug svona flugvél, þannig að þetta var gaman :)